Borgarbúar telja Félagsbústaði mikilvæga en margir þekkja starfsemina lítið

Fréttir

Þrír af hverjum fjórum íbúum Reykjavíkur telja að Félagsbústaðir gegni mikilvægu hlutverki í að tryggja fólki öruggt og viðeigandi húsnæði. Á sama tíma segist um helmingur borgarbúa þekkja starfsemi félagsins illa. Þetta kemur fram í nýrri könnun sem Maskína gerði fyrir Félagsbústaði í september.

Niðurstöðurnar benda til þess að almenn sátt ríki meðal borgarbúa um að félagslegt húsnæði skipti máli og að Félagsbústaðir sinni mikilvægu verkefni. Félagið er hins vegar lítt sýnilegt utan hóps leigjenda og samstarfsaðila, og þar liggja skýr tækifæri til að efla þekkingu á félaginu og starfseminni.

Mikilvægt hlutverk en lítil þekking

Í könnuninni kemur fram að 75% eru sammála því að Félagsbústaðir gegni mikilvægu hlutverki og aðeins 5% eru því ósammála. Stuðningurinn er víðtækur og nær yfir alla aldurshópa, hverfi borgarinnar og tekjuhópa. 

Almennt viðhorf til félagsins hefur heldur gefið eftir á síðustu árum. Árið 2021 voru 55% borgarbúa jákvæð í garð Félagsbústaða en nú eru þau 46%. Neikvæðum hefur fjölgað úr 7% í 15%. Um 39% eru hlutlaus og sá hópur þekkir starfsemina jafnframt verst, því sjö af hverjum tíu í honum segjast þekkja hana illa. Þekkingin er einnig minnst meðal yngsta hópsins. Um tveir af hverjum þremur á aldrinum 18–29 ára segjast þekkja félagið illa.

Í heildina segjast um 51% þekkja starfsemina illa og 16% vel. Það hlutfall hefur haldist nær óbreytt frá árinu 2021.

Leigjendur aldrei ánægðari

Niðurstöðurnar koma í kjölfar þjónustukönnunar meðal leigjenda sem Félagsbústaðir kynntu í júní. Þar mældist ánægja leigjenda meiri en nokkru sinni fyrr. Rúmlega 86% leigjenda sögðust ánægð með að leigja hjá félaginu og 75% með þjónustuna. Félagsbústaðir hafa á undanförnum árum unnið markvisst að því að bæta þjónustu, efla samskipti og bregðast betur við þörfum leigjenda og sýna þessar tölur að vinnan hafi skilað sér.

Vinna hafin við að auka þekkingu á félaginu

Þórdís Lóa Þórhallsdóttir framkvæmdastjóri Félagsbústaða segir að niðurstöður kannananna tveggja, meðal borgarbúa og leigjenda, feli í sér bæði hvatningu og tækifæri.

Það er dýrmætt að svo margir borgarbúar telji hlutverk okkar mikilvægt. Leigjendur okkar hafa aldrei verið ánægðari og það sýnir að vinnan við að bæta þjónustu og samskipti hefur skilað sér. Hins vegar sjáum við að við megum gera betur í því að miðla hlutverkinu okkar út í samfélagið. Því ætlum við að breyta, segir Þórdís Lóa.

Við erum nú að hefja vinnu sem miðar að því að auka þekkingu á Félagsbústöðum og gera starfið sýnilegra. Við ætlum að segja skýrar frá því hvað við gerum, fyrir hverja og hvers vegna það skiptir máli. Vinnan við að móta nýja nálgun í samskiptum er þegar hafin. Bæði stjórnendur og starfsfólk Félagsbústaða koma saman í þá vegferð. Þetta stöðumat er grunnurinn og við tökum það með okkur sem veganesti, bætir Þórdís Lóa við.

Um könnunina

Maskína framkvæmdi könnunina 9.–14. september 2026. Svarendur voru 1.054 íbúar Reykjavíkur, 18 ára og eldri, valdir af handahófi úr Þjóðgátt Maskínu. Svör voru vegin eftir kyni, aldri, búsetu og menntun.



Media
Félagsbústaðir eru Framúrskarandi fyrirtæki 2026
Hópmynd 2026 (1)
Félagsbústaðir hljóta viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026
_Samradsvettvangur_ohagnadardrifinna_leigufelaga
Uppbygging snýst um örugg heimili
FramúrskarandiFyrirtæki2025
Sigrún lætur af störfum sem framkvæmdastjóri Félagsbústaða
download
Við erum stolt af góðum árangri
Brekknaáshús
Fögnuðu opnun nýs og glæsilegs íbúðakjarna
Bleikar veitingar
Við styðjum Krabbameinsfélagið
Jafnvægisvogin 2025
Jafnvægisvog FKA

Að hverju ertu að leita?