Félagsbústaðir hafa hlotið viðurkenningu Creditinfo sem Framúrskarandi fyrirtæki árið 2026. Viðurkenningin byggir á greiningu á fjárhagslegum styrk og stöðugleika í rekstri.
Til að teljast Framúrskarandi fyrirtæki þurfa félög að uppfylla ströng skilyrði Creditinfo, meðal annars um lánshæfi, jákvæða afkomu og eiginfjárhlutfall yfir þriggja ára tímabil.
Traustur rekstur er mikilvæg undirstaða þess að Félagsbústaðir geti sinnt samfélagslegu hlutverki sínu og veitt leigjendum öruggt og gott húsnæði til framtíðar. Viðurkenningin er því ánægjuleg staðfesting á árangri undanfarinna ára og hvatning til áframhaldandi góðra verka.
“Starfsfólk og samstarfsaðilar eiga miklar þakkir skildar fyrir þeirra framlag til þessa árangurs.” segir Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, framkvæmdastjóri Félagsbústaða .
