Félagsbústaðir hljóta viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026

Fréttir

Félagsbústaðir hafa hlotið viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026.

Viðurkenningin er ánægjuleg staðfesting á þeirri vegferð sem Félagsbústaðir eru á við að skapa vinnustað þar sem jöfn tækifæri, fjölbreytileiki og jafnrétti eru höfð að leiðarljósi.

Fjölbreytileiki  skiptir okkur miklu máli og stuðlar að ólíkum sjónarhornum við ákvarðanatöku, sterkri vinnustaðamenningu og góðum árangri. Jafnrétti og fjölbreytileiki er ekki verkefni sem lýkur með einum áfanga heldur er það stöðug vinna sem Félagsbústaðir vilja halda áfram að þróa.

Við erum stolt af þessari viðurkenningu og þökkum FKA-Jafnvægisvog fyrir hana. Ekki síður viljum við þakka starfsfólki Félagsbústaða, sem alla daga vinna að því að skapa öflugan og fjölbreyttan vinnustað.

Um Jafnvægisvogina
Jafnvægisvog FKA veitir fyrirtækjum, sveitarfélögum og stofnunum viðurkenningu fyrir að hafa náð markmiði um kynjajafnvægi í efsta stjórnendalagi.

#Losumumhnútinn

Media
Félagsbústaðir eru Framúrskarandi fyrirtæki 2026
_Samradsvettvangur_ohagnadardrifinna_leigufelaga
Uppbygging snýst um örugg heimili
Borgarbúar telja Félagsbústaði mikilvæga en margir þekkja starfsemina lítið
FramúrskarandiFyrirtæki2025
Sigrún lætur af störfum sem framkvæmdastjóri Félagsbústaða
download
Við erum stolt af góðum árangri
Brekknaáshús
Fögnuðu opnun nýs og glæsilegs íbúðakjarna
Bleikar veitingar
Við styðjum Krabbameinsfélagið
Jafnvægisvogin 2025
Jafnvægisvog FKA

Að hverju ertu að leita?