Framkvæmdir við nýtt 7 íbúða fjölbýli við Öskjuhlíð hafnar

Fréttir

Nýverið var undirritaður verksamningur milli Félagsbústaða og Afltaks hf.  um byggingu þriggja hæða fjölbýlishúss að Nauthólsvegi 83D ásamt frágangi á lóð. Undirbúningur við framkævmdir eru þegar hafnar og er áætlað að byggingu hússins verði lokið í september 2026.

Húsið sem áætlað er að verði um 780 m2 að stærð rís á lóð Háskólans í Reykjavík en um það var gert sérstakt samkomulagi milli Reykjavíkurborgar og HR. Í húsinu verða sjö íbúðir sérstaklega hannaðar með þarfir fatlaðs fólks í huga auk aðstöðu fyrir starfsfólk sem sinnir ýmis konar þjónustu við íbúana.

Verkið var boðið út í samræmi við innkaupareglur Félagsbústaða. Alls bárust 7 tilboð í bygginuna og var tilboði lægstbjóðenda, Alftaks, tekið. Þess má geta að Afltak sá einnig um byggingarframkvæmdir við sambærilegt hús á Vesturgötu sem opnað var fyrir um einu og hálfu ári síðan.

Kanon arkitektar, Þórður Steingrímsson,  hönnuðu húsið  og hafa hannað fleiri byggingar á lóð HR. Fallegt skógi vaxið umhverfi hússins og hönnun þess mun án efa stuðla að aukinni velsæld þeirra sem þar munu búa sér heimili.

Svanþór Gunnarsson hjá Verkfræðistofnan Víðsjá mun sjá um byggingarstjórn og byggingaeftirlit.

Hönnun og skipulag hússins tekur mið af séstökum þörfum fatlaðs fólks og er liður í uppbyggingaráætlun Reykjavíkurborgar í húsnæðismálum fatlaðra.

Við undirritun verksamnings um 7 íbúðafjölbýlishús við Nauthólsveg.

Nöfnin frá vinstri til hægri. Svannþór Gunnarsson, Guðbjartur Geir Grétarsson, Hafsteinn Helgi Grétarsson, Jónas Bjarni Árnason, Kristín Ýr Pálmarsdóttir, Sigrún Árnadóttir og Sigurður Halldór Örnólfsson.

Húsið mun rísa á skógi vöxnum og skjólsælum stað við Öskjuhlíðina.

Nöfnin frá vinstri til hægri. Guðbjartur Geir Grétarsson, Jónas Bjarni Árnason, Sigurður Halldór Örnólfsson, Sigrún Árnadóttir, Kristín Ýr Pálmarsdóttir og Hafsteinn Helgi Grétarsson.

Háteigsvegur 59
Nýtt fallegt hús risið við Sjómannaskólareitinn   
Framurskarandi-fyrirtaeki-2024
FRAMÚRSKARANDI FYRIRTÆKI 2024
nýir starfsmenn
Nýir starfsmenn Félagsbústaða á árinu 2024
Sjálfbærniskýrlsa Félagsbústaða 2023
download
Spennandi og áhugavert starf sviðsstjóra þjónustusviðs hjá Félagsbústöðum er laust til umsóknar
my
Ánægja leigjenda Félagsbústaða með húsnæði og þjónustu eykst milli mælinga
WeAreHiring
Okkur vantar hressan sérfræðing í leigjendamálum
Sambýlið við Hagasel 23
Fyrsta opinbera byggingin sem hlýtur Svaninn

Að hverju ertu að leita?