„Græna skóflan 2025“ Umhverfisvænt, bjart og fallegt hús

Tilkynningar

Nýbyggt hús Félagsbústaða við Háteigsveg 59 hlaut “Grænu skófluna 2025” fyrir framúrskarandi verkefni á sviði vistvænnar mannvirkjagerðar. Viðurkenningin var veitt í Iðnó að viðstöddu  fjölmenni  á árlegri ráðstefnu “Dags grænnar byggðar”  sem fram fór í Iðnó. Meginefni ráðstefnunnar í ár var á sjálfbærni í byggingariðnaði með sérstakri áherslu á  félagslega þætti og vellíðan notenda.

Í mati dómnefndar um Háteigsveg 59 kemur segir m.a.: „Verkefnið sýndi fram á að jafnvel innan núverandi reglu- og lagaumhverfis er auðveldlega hægt að draga úr kolefnisspori og endurnýta ýmis byggingarefni samhliða alhliða hönnunargrunnreglum á farsælan hátt. Sé Háteigsvegur borin saman við sambærilega byggingu, er kolefnisspor verkefnisins um 50 prósent lægra. Háteigsvegur, leggur áherslu á aðgengi fyrir alla, hagkvæmni, notkun hágæða og heilnæmra efna, auk þess að skapa heimilislegt umhverfi.“ Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, HMS, fylgdist vel með byggingu hússins og hefur skráð upplýsingar um verkefnið á vefnum „H59 – Byggjum Grænni Framtíð“. 

„Arnhildur Pálmadóttir arkitekt hefur verið „kallinn í brúnni“ í verkefninu. Áræðin, skapandi og  framsýn, enda hlaut hún nýverið umhverfisverðlaun fyrir frumkvöðlastarf á vegum norðurlandaráðs. Ég er þess fullviss að íbúum og starfsfólki mun líða vel í þessu fallega umhverfi,“  sagði Sigrún Árnadóttir, þegar hún tók við viðurkenningunni fyrir hönd Félagsbústaða.

Háteigsvegur 59 var tilbúinn til notkunar í upphafi þessa árs. Í húsinu er 7 íbúðir fyrir fatlað fólk ásamt þjónusturými. Hönnun hússins tekur mið af sérstökum þörfum íbúanna og er bygging hússins liður í uppbyggingaráætlunum Reykvíkurborgar í húsnæðismálum fatlaðs fólks. Húsið stendur á afskaplega fallegum stað í næsta nágrenni við Sjómannaskólann. Íbúðirnar eru vel skipulagðar, fallegar, bjartar  og útsýnið einstakt úr mörgum þeirra.

Árið 2021 auglýstu Félagsbústaðir í samstarfi við Arkitektafélag Íslands eftir arkitektum til að hanna tvær nýjar byggingar fyrir fatlað fólk, annars vegar við Háteigsvegi 59 og hins vegar við Brekknaás 6. Fjöldi arkitekta með teymi hönnuða skiluðu inn tillögum og kynntu hugmyndir sínar. Hönnun hússins við Háteigsveg kom í hlut kom í hlut Arnhildar Pálmadóttur arkitekts m.a. vegna hugmynda hennar um endurnýtingu efna og lækkun kolefnisspors byggingarinnar, en kolefnisspor hússins er rúmlega 59% minna en samanburðarhúss og tæplega 20% byggingarefnis er annað hvort endurnýtt efni eða afgangsefni og má þar nefna gólfefni, glugga og utanhússklæðning.

two-women-flat-icon-vector-7561290
Kvennaverkfall 24. október 2025
Lokað verður á skrifstofu Félagsbústaða föstudaginn 1. ágúst.
Breyttur opnunartími Félagsbústaða
Opnunartimi-FB
Opnunartími Félagsbústaða í desember
Félagsbústaðir bætir þjónustu við leigjendur
placeholder
Heitavatnslaust 19-21 ágúst í Breiðholti og Norðlingaholti
Rectangle 1701
Auglýst eftir óháðu stjórnarfólki Félagsbústaða
Svidsstjori
Við leitum að nýjum sviðsstjóra eigna- og viðhaldssviðs

Að hverju ertu að leita?