Uppskeruhátíð stjórnenda sem láta sig jafnrétti varða
Við erum afskaplega stolt af þessari viðurkenningu, segir Sigrún Árnadóttir, framkvæmdastjóri en Félagsbústaðir fengu afhenda viðurkenningu Jafnvægisvogar FKA, 9. október sl. við hátíðlega athöfn í Hátíðarsal HÍ.
Jafnvægisvog FKA er hreyfiaflsverkefni unnið í samstarfi með Creditinfo, Deloitte, dómsmálaráðuneyti, Pipar\TBWA, RÚV, Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi og Sjóvá.
Verkefnið hefur þann tilgang að auka á jafnvægi kynja í efsta lagi stjórnunar fyrirtækja, stofnana og sveitarfélaga á Íslandi. Ennfremur snýr verkefni Jafnvægisvogarinnar að því að virkja íslenskt viðskiptalíf til að verða að fyrirmynd jafnréttis fyrir aðrar þjóðir og að taka saman heildræna stöðu og niðurstöðu greininga á stöðu stjórnenda í íslensku atvinnulífi, og birta niðurstöður.
Öll þau fyrirtæki sem hlutu viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar var boðið í Jafnréttislund FKA í Heiðmörk og þar gróðursettu fulltrúar fyrirtækja tré sem jafnframt var gjöf sem fylgdi viðurkenningunni.

Guðrún Þorsteinsdóttir, sérfræðingur mannauðsmála hjá Félagsbústöðum tók á móti viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar í Hátíðarsal Háskóla Íslands og gróðursetti bláfuru f.h. Félagsbústaða í Jafnréttislundinn.