Kveðja til leigjenda

Tilkynningar

Kæru leigjendur Félagsbústaða,

Í lok þessarar viku læt ég af störfum sem framkvæmdastjóri Félagsbústaða eftir tæplega átta ára starf og kveð með þakklæti og hlýju. Þórdís Lóa Þórhallsdóttir sem hefur verið ráðin til starfsins hefur störf  í byrjun ágúst.

Það hefur verið mér bæði heiður og ánægja að fá að starfa með og fyrir ykkur, leigjendur félagsins, ásamt öflugu starfsfólki Félagsbústaða að því markmiði að veita góða þjónustu og vinna að auknu húsnæðisöryggi í Reykjavíkurborg með stöðugri fjölgun félagslegra leiguíbúða.

Á þessum árum höfum við lagt áherslu á að hlusta á ykkar raddir, meðal annars með reglulegum þjónustukönnunum. Svör ykkar hafa veitt okkur sem hér störfum mikilvægar upplýsingar um m.a. það sem vel er gert, hvað má bæta, hvernig ykkur líkar húsnæðið og staðsetning þess. Alls hafa fjórar kannanir verið gerðar á sl. átta árum. Niðurstöður þeirra hafa nýst vel til umbóta og er gleðilegt að sjá að ánægja leigjenda hefur almennt aukist frá einni þjónustukönnun til annarrar.

Um leið og ég  óska hverju og einu  ykkar velfarnaðar í framtíðinni vil ég færa ykkur einlægar þakkir fyrir samskiptin í gegnum árin, fyrir traust og góð samskipti.

Með hlýjum kveðjum og þökkum,


Sigrún Árnadóttir
framkvæmdastjóri

Ánægja leigjenda Félagsbústaða aldrei mælst meiri
Untitled
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir ráðin framkvæmdastjóri Félagsbústaða
banner2
Lokað vegna starfsdags 12. júní
Þjónustukönnun Félagsbústaða 2026
Skipting eignasafns Félagsbústaða eftir borgarhlutum
Rekstur Félagsbústaða sjálfbær og yfir viðmiðum borgarinnar
placeholder
Leiðrétting rangfærslna um Félagsbústaði í hlaðvarpsþætti Þjóðmála
Jólakveðja-heimasíðu
Jólakveðja frá Félagsbústöðum
Opnunartími Félagsbúdstaða í desember
Opnunartími Félagsbústaða í desember

Að hverju ertu að leita?