Rekstur Félagsbústaða sjálfbær og yfir viðmiðum borgarinnar

Tilkynningar

Ársreikningur Félagsbústaða fyrir árið 2025 var kynntur á aðalfundi félagsins sem haldinn var á dögunum. Félagsbústaðir eru í dag eitt stærsta leigufélag landsins en félagið átti 3.177 félagslegar leiguíbúðir í árslok 2025 og er heildarstærð eignasafnsins um 226 þúsund fermetrar. Félagið gegnir lykilhlutverki á húsnæðismarkaði í Reykjavík en félagslegt leiguhúsnæði þess samsvarar um 5,2% af heildarfjölda íbúða í borginni. Það er yfir markmiðum Húsnæðisáætlunar Reykjavíkurborgar sem gerir ráð fyrir að hlutfallið verði 5%. 

Áframhaldandi kaup á félagslegu leiguhúsnæði
Á árinu voru keyptar 56 íbúðir og voru þær flestar á þéttingarreitum. Á árinu voru sex einingar seldar þar sem þær þóttu ekki lengur falla að markmiðum félagsins um dreifða staðsetningu íbúða innan borgarinnar.

Leiguverð hjá Félagsbústöðum var að meðaltali 34% lægra en á almennum markaði samkvæmt leiguverðsgrunni HMS. Það undirstrikar mikilvægi félagsins í að tryggja tekjulægri hópum aðgengi að viðráðanlegu húsnæði. Nýting íbúða var áfram mjög há eða 97,3% sem endurspeglar mikla eftirspurn eftir félagslegu leiguhúsnæði í Reykjavík. 

Sterkur og sjálfbær rekstur
Félagsbústaðir hf. skiluðu sterkri rekstrarniðurstöðu á árinu 2025,  rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu fasteigna nam 3,2 milljörðum króna og jákvæð heildarafkoma nam 7,7 milljörðum króna. Rekstrartekjur námu 7,4 milljörðum króna og jukust um 5,1% milli ára.

Fjárhagsstaða félagsins er sterk. Eigið fé nam 94 milljörðum króna í árslok,  eiginfjárhlutfall var 53,5% og heildareignir námu 175,8 milljörðum króna.  Þá náði félagið markmiði sínu um fjárhagslega sjálfbærni á árinu 2025 en veltufé frá rekstri stóð undir afborgunum langtímalána. Niðurstaðan var 93 milljónir króna umfram sjálfbærniviðmið. 

Horfur fyrir árið 2026 eru stöðugar, þó enn ríki óvissa um framboð nýrra íbúða og framtíðarfjármögnun. Félagið mun áfram leggja áherslu á aðhald í rekstri og markvissa uppbyggingu húsnæðis til að mæta þörf á markaði sem er mikil. Sigrún Árnadóttir framkvæmdastjóri Félagsbústaða segir stöðu félagsins sýna skýrt mikilvægi þess fyrir húsnæðisöryggi í borginni:

,,Það er ljóst að Félagsbústaðir skipta sköpum í að auka húsnæðisöryggi.
Við sjáum sífellt aukna eftirspurn eftir félagslegu húsnæði þar sem leigjendur geta búið við langtíma húsnæðisöryggi og hagkvæmt leiguverð. Félagið stendur á styrkum stoðum, rekstrartekjur stóðu að fullu undir rekstrargjöldum, vaxtagreiðslum og  afborgunum lána en það er sá mælikvarði sem skilgreindur er sem fjárhagsleg sjálfbærni.“Nánari upplýsingar:

placeholder
Leiðrétting rangfærslna um Félagsbústaði í hlaðvarpsþætti Þjóðmála
Jólakveðja-heimasíðu
Jólakveðja frá Félagsbústöðum
Opnunartími Félagsbúdstaða í desember
Opnunartími Félagsbústaða í desember
DGB25-27
„Græna skóflan 2025“ Umhverfisvænt, bjart og fallegt hús
two-women-flat-icon-vector-7561290
Kvennaverkfall 24. október 2025
Lokað verður á skrifstofu Félagsbústaða föstudaginn 1. ágúst.
Breyttur opnunartími Félagsbústaða
Opnunartimi-FB
Opnunartími Félagsbústaða í desember

Að hverju ertu að leita?