Sigrún lætur af störfum sem framkvæmdastjóri Félagsbústaða

Fréttir

Sigrún Árnadóttir, framkvæmdastjóri Félagsbústaða, tilkynnti stjórn félagsins á stjórnarfundi 20. apríl sl. ákvörðun sína um að segja starfi sínu lausu en hún hefur gegnt starfinu í hartnær 8 ár.

Í bréfi Sigrúnar til stjórnar segir m.a. „Ég vil þakka ykkur, það traust sem þið hafið auðsýnt mér og það góða samstarf sem við höfum átt, ekki hvað síst þakka ég stjórnarformanni þétt og gott samstarf. Stjórn og framkvæmdastjórn Félagsbústaða hafa í sameiningu unnið að málefnum félagsins af heilindum og eindrægni. Félagið hefur mikilvægu samfélagslegu hlutverki og verkefnum að gegna og það er trú mín að það sé nú vel í stakk búið til að valda því hlutverki og mæta þörfum þeirra sem reiða sig á þjónustu þess. Áskoranirnar hafa verið margar, bæði fyrir stjórn og mig sem framkvæmdastjóra, en okkur hefur tekist í sameiningu að leysa úr þeim af festu og sanngirni, ávallt með það að leiðarljósi að styrkja Félagsbústaði til það að geta rækt þjónustuhlutverk  sitt. Það hefur verið bæði gefandi og lærdómsríkt að starfa fyrir  Félagsbústaði.  Ég þakka fyrir mig og óska félaginu, starfsfólki og stjórninni allrar farsældar.“ 

Stjórn Félagsbústaða bókaði þakkir til Sigrúnar fyrir framlag hennar undanfarin átta ár.  Eftirfarandi var fært til bókar þegar starfslok Sigrúnar komu til umræðu.

„Félagsbústaðir hafa á undanförnum árum markvisst unnið að því að stækka eignasafn félagsins og styrkja reksturinn og hefur Sigrún leikið þar lykilhlutverk. Félagsbústaðir eru í dag nútímalegt fasteignafélag sem mætir kröfum samtímans og er með tæplega 3200 leiguíbúðir í sinni eigu. Ánægja leigjenda með þjónustu félagsins og með húsnæði sem það leigir hefur vaxið frá einni mælingu til annarrar frá 2019. Stjórn Félagsbústaða þakkar Sigrúnu kærlega fyrir metnaðarfullt og óeigingjarnt starf undanfarin ár í þágu félagsins. Þá þakkar stjórn fyrir ánægjulegt og farsælt samstarf og óskar Sigrúnu velfarnaðar.“

Auglýst hefur verið eftir nýjum framkvæmdastjóra Félagsbústaða, sjá www.hagvangur.is. 

download
Við erum stolt af góðum árangri
Brekknaáshús
Fögnuðu opnun nýs og glæsilegs íbúðakjarna
Bleikar veitingar
Við styðjum Krabbameinsfélagið
Jafnvægisvogin 2025
Jafnvægisvog FKA
yrsufell
Utanhússframkvæmdir í fjölbýlishúsum við Yrsufell og Þorláksgeisla
Nauthólsvegi 83D
Framkvæmdir við nýtt 7 íbúða fjölbýli við Öskjuhlíð hafnar
Háteigsvegur 59
Nýtt fallegt hús risið við Sjómannaskólareitinn   
Framurskarandi-fyrirtaeki-2024
FRAMÚRSKARANDI FYRIRTÆKI 2024

Að hverju ertu að leita?