Stjórn Félagsbústaða hf. hefur ráðið Þórdísi Lóu Þórhallsdóttur framkvæmdastjóra félagsins að loknu mati ráðgefandi hæfnisnefndar og mun hún hefja störf 10. ágúst næstkomandi.
Þórdís Lóa býr yfir víðtækri og fjölþættri reynslu af stjórnun, stefnumótun og rekstri bæði innan opinberrar stjórnsýslu og atvinnulífs. Hún hefur frá árinu 2018 gegnt lykilhlutverkum hjá Reykjavíkurborg, m.a. sem formaður borgarráðs og forseti borgarstjórnar. Þórdís Lóa hefur jafnframt umfangsmikla reynslu af velferðar- og félagsmálum, árin 1997–2005 starfaði hún sem yfirmaður öldrunarþjónustu Reykjavíkurborgar og framkvæmdastjóri þjónustusviðs á velferðarsviði Reykjavíkurborgar (Félagsþjónustunni í Reykjavík). Að auki hefur hún starfað sem forstjóri og stjórnandi í atvinnulífinu og gegnt stjórnarformennsku og setið í stjórnum fjölmargra félaga.
Hún er með MBA-gráðu í rekstrarhagfræði og framhaldsnám í félagsráðgjöf. Að mati stjórnar fellur menntun hennar, reynsla og leiðtogahæfni vel að starfsemi Félagsbústaða og mikilvægu hlutverki félagsins í húsnæðismálum Reykjavíkur.
Stjórn félagsins þakkar jafnframt Sigrúnu Árnadóttur fráfarandi framkvæmdastjóra fyrir metnaðarfull störf í þágu félagsins undanfarin ár.
