Húsnæðisöryggi og þarfir fólks eiga að vera leiðarljós við uppbyggingu félagslegs húsnæðis. Fyrir okkur snýst uppbygging um meira en hús og fermetra, hún snýst um heimili.
Félagsbústaðir tryggja framboð félagslegs leiguhúsnæðis í Reykjavík. Við tökum þátt í samráði HMS og óhagnaðardrifinna húsnæðisfélaga um húsnæðisuppbyggingu, þar sem fjármögnun og aðgengi að lóðum eru meðal helstu viðfangsefna.
Við hjá Félagsbústöðum viljum að þarfir fólks séu í fyrirrúmi. Uppbygging okkar byggist á langtímahugsun, ábyrgri nýtingu fjármuna og samstarfi sem skilar árangri fyrir þau sem þurfa á húsnæði að halda.
Markmiðið á að vera skýrt: að fleiri geti búið við öryggi og stöðugleika á eigin heimili.
Nánar í frétt HMS: Uppbygging leiguíbúða með viðráðanlegan húsnæðiskostnað annar ekki eftirspurn