Við erum stolt af góðum árangri

Fréttir

Félagsbústaðir  eru í 43 sæti meðal hátt í 1.200 fyrirtækja á landinu sem hljóta viðurkenningu Creditinfo sem „Framúrskarandi fyrirtæki 2025“. Þetta er tíunda  árið í röð sem Félagsbústaðir  hljóta viðurkenninguna.

„Við erum sannarlega stolt af þessum árangri, og höfum að leiðarljósi gegnsæi og ábyrgan rekstur ásamt því að auka framboð félagslegs leiguhúsnæðis í borginni  og veita leigjendum okkar góða þjónustu,“ segir Sigrún Árnadóttir framkvæmdastjóri Félagsbústaða, þegar fulltrúar Íslandsbanka færðu félaginu gómsæta köku í tilefni viðurkenningarinnar. 

Til þess að teljast framúrskarandi þurfa fyrirtæki að uppfylla ströng skilyrði sem gefa vísbendingar um að fyrirtækin séu líklegri til að ná árangri og standast álag frekar en önnur, segir á vef Creditinfo.

Meðal skilyrða má nefna að rekstrarhagnaður og ársniðurstaða þarf að vera jákvæð , eiginfjárhlutfall að lágmarki 20%  og eignir að minnsta kosti 120 milljónir á tímabilinu 2022 til 2024.

 Á árinu 2024 námu tekjur Félagsbústaða ríflega sjö milljörðum króna, eiginfjárhlutfallið var rúmlega 53% og eignir félagsins tæplega 163 milljörðum króna en það eru nær eingöngu félagslegar leiguíbúðir í Reykjavík en þær eru nú liðlega 3150.

Brekknaáshús
Fögnuðu opnun nýs og glæsilegs íbúðakjarna
Bleikar veitingar
Við styðjum Krabbameinsfélagið
Jafnvægisvogin 2025
Jafnvægisvog FKA
yrsufell
Utanhússframkvæmdir í fjölbýlishúsum við Yrsufell og Þorláksgeisla
Nauthólsvegi 83D
Framkvæmdir við nýtt 7 íbúða fjölbýli við Öskjuhlíð hafnar
Háteigsvegur 59
Nýtt fallegt hús risið við Sjómannaskólareitinn   
Framurskarandi-fyrirtaeki-2024
FRAMÚRSKARANDI FYRIRTÆKI 2024
nýir starfsmenn
Nýir starfsmenn Félagsbústaða á árinu 2024

Að hverju ertu að leita?