Starfsfólk Félagsbústaða gerði sér dagamun og tók að sjálfsögðu þátt í Bleika deginum 22.10.2025
Allt starfsfólk mætti í einhverju bleiku og flestir komu með veitingar á bleika kaffihlaðborðið sem stjórn starfsmannafélagsins skipulagði.
Veitt voru verðlaun fyrir flottasta bleika klæðnaðinn og var fallegur múmínbolli í verðlaun sem var keyptur í Bleiku búðinni og er til styrktar málefninu.


