About us

The role of Félagbústaðir is to rent out apartments to individuals and families who have been allocated social housing by the Reykjavík City Welfare Department. Social housing is a non-profit corporation wholly owned by the City of Reykjavík.

Félagsbústaðir hf. eru húsnæðisfélag í eigu Reykjavíkurborgar. Félagið sinnir mikilvægu samfélagslegu hlutverki í húsnæðiskerfi borgarinnar með því að eiga, reka, viðhalda og leigja út félagslegt leiguhúsnæði til einstaklinga og fjölskyldna sem uppfylla skilyrði um slíkt húsnæði.

Félagið er ekki rekið með hefðbundið hagnaðarmarkmið að leiðarljósi. Hlutverk þess er fyrst og fremst að auka húsnæðisöryggi, stuðla að félagslegum stöðugleika og tryggja aðgengi að öruggu og viðráðanlegu húsnæði í Reykjavík.

Starfsemi félagsins byggir á nánu samstarfi við Reykjavíkurborg, velferðarsvið borgarinnar, leigjendur, verktaka, húsfélög og aðra samstarfsaðila. Félagið þarf að sameina samfélagslegt hlutverk, faglegan fasteignarekstur og fjárhagslega sjálfbæran rekstur til lengri tíma.

Félagsbústaðir starfa samkvæmt húsnæðisáætlun og eigandastefnu Reykjavíkurborgar. Borgin mótar stefnu um félagslegt húsnæði en Félagsbústaðir annast eignarhald, rekstur, viðhald og útleigu húsnæðisins.

Markmið borgarinnar er að félagslegt leiguhúsnæði sé aðgengilegt í öllum hverfum og styðji við fjölbreytt og inngildandi borgarsamfélag. Félagsbústaðir gegna þar lykilhlutverki með dreifðu eignasafni um alla borg og fjölbreyttum húsnæðisúrræðum fyrir ólíka hópa leigjenda.

What are you looking for?