Chat with us, powered by LiveChat

Stjórnskipulag

Starfsemi skrifstofu Félagsbústaða skiptist í fjármálasvið, eigna- og viðhaldssvið og þjónustu- og upplýsingasvið ásamt fasteignakaupum og nýbyggingum.

Framkvæmdastjóri

Framkvæmdastjóri hefur með höndum stjórn á daglegum rekstri. 

Undir fasteignaþróun og fasteingakaup falla verkefni eins og uppbygging eignasafns og samningar vegna fasteignaviðskipta. 

Fjármálasvið

Fjármálasvið ber ábyrgð á fjármálalegri umsýslu, fjárstýringu, fjárhagsgreiningum og gerð og eftirfylgni fjárhagsáætlana. Fjármálasvið sér um innheimtu og greiðslu reikninga. 

Eigna- og viðhaldssvið

Eigna- og viðhaldssvið annast viðhald fasteigna og standsetningu íbúða áður en þær fara til útleigu. Viðhaldsverkefni eru unnin í samræmi við árlegar viðhaldsáætlanir og tilfallandi viðhald, hugað er að hagkvæmni og sjálfbærni í efnisvali og orkunotkun.

Þjónustu- og upplýsingasvið

Þjónustu- og upplýsingasvið sér um samskipti og upplýsingamiðlun til leigjenda, annast gerð leigusamninga, móttöku og úrvinnslu erinda frá leigjendum og öðrum tengdum aðilum eins og húsfélögum og nágrönnum. Þjónustusvið sér um tengsl og samstarf við Blokkina, félag leigjenda hjá Félagsbústöðum. 

Aðalfundur
eigandafundur

Stjórn
Félagsbústaða

Áhættunefnd

Endurskoðunarnefnd

Framkvæmdastjóri

Sigrún Árnadóttir

Fasteignakaup
og nýbyggingar

Andrés Ívarsson

Eyþór Friðriksson

Undir fasteignakaup og nýbyggingar falla verkefni sem snúa að uppbyggingu eignasafns með kaupum á fasteignum á markaði og byggingu á nýjum eignum.

Eigna-
og viðhaldssvið

Grétar Örn Jóhannsson

Eigna- og viðhaldssvið annast viðhald fasteigna í búsetu og standsetningu íbúða áður en þær fara til útleigu. Viðhaldsverkefni eru unnin í samræmi við árlegar viðhaldsáætlanir og er hugað er að hagkvæmni og sjálfbærni í efnisvali og orkunotkun.

Fjármálasvið

Kristinn Karel Jóhannsson

Fjármálasvið ber ábyrgð á fjármálalegri umsýslu, fjárstýringu, fjárhagsgreiningum og gerð og eftirfylgni fjárhagsáætlana. Fjármálasvið sér um innheimtu og greiðslu reikninga.

Þjónustu-
og upplýsingasvið

Þóra Þorgeirsdóttir

Þjónustu- og upplýsingasvið sér um samskipti og upplýsingamiðlun til leigjenda, annast gerð leigusamninga, móttöku og úrvinnslu erinda frá leigjendum og öðrum tengdum aðilum eins og húsfélögum og nágrönnum. Þjónustusvið sér um tengsl og samstarf við Blokkina, félag leigjenda hjá Félagsbústöðum.

Að hverju ertu að leita?