BREYTTIR OPNUNARTÍMAR OG FLEIRA

Tilkynningar

Eftirfarandi breytingar verða á opnunartíma skrifstofu Félagsbústaða og símatímum innheimtudeildar þann 1. maí næstkomandi.

Opnunartími skrifstofu verður framvegis á mánudögum frá 8-16 og þriðjudaga – föstudaga frá 9-15.

Símatími innheimtudeildar verður mánudaga, miðvikudaga og föstudaga frá 11-12. Alltaf er hægt að senda tölvupóst á innheimtudeildina í gegnum heimasíðuna felagsbustadir.is/hafa-samband/

Eindagi húsaleigu breytist einnig og verður framvegis 7. hvers mánaðar.

Innheimtuviðvörun er send út 14 dögum eftir eindaga ef greiðsla hefur ekki borist. Ef krafa er enn ógreidd eða ekki hefur verið samið um hana 28 dögum eftir eindaga þá er hún sett í innheimtuferli Mótus. Bendum á að allar upplýsingar um innheimtuferli má finna á heimasíðu Félagsbústaða.

Greiðsluseðlar verða framvegis aðgengilegir í netbanka viðskiptavina. Þeir leigjendur sem óska ekki eftir að fá greiðsluseðil í pósti geta sent tölvupóst á innheimta@felagsbustadir.is eða haft samband símleiðis sími: 520 1500.

Flestir leigjendur eru skilvísir og greiða leigu með beingreiðslum sem er besti greiðslumátinn og erum við þakklát fyrir það. Þessar breytingar munu því ekki að hafa mikil áhrif á þjónustu við leigjendur.

Bestu kveðjur,
F.h. Félagsbústaða hf.
Auðun Freyr Ingvarsson
Framkvæmdastjóri

Jólakveðja-heimasíðu
Jólakveðja frá Félagsbústöðum
Opnunartími Félagsbúdstaða í desember
Opnunartími Félagsbústaða í desember
DGB25-27
„Græna skóflan 2025“ Umhverfisvænt, bjart og fallegt hús
two-women-flat-icon-vector-7561290
Kvennaverkfall 24. október 2025
Lokað verður á skrifstofu Félagsbústaða föstudaginn 1. ágúst.
Breyttur opnunartími Félagsbústaða
Opnunartimi-FB
Opnunartími Félagsbústaða í desember
Félagsbústaðir bætir þjónustu við leigjendur

Að hverju ertu að leita?