Chat with us, powered by LiveChat

VEGNA UMRÆÐU UM LÆKKUN HÚSNÆÐISSTUÐNINGS HJÁ FÉLAGSBÚSTÖÐUM

Fréttir

Félagsbústaðir vilja árétta að ákvarðanir um húnæðisstuðning eru ekki teknar hjá Félagsbústöðum eins og fram hefur komið í fjölmiðlum síðustu daga.


Lög um húsnæðisbætur nr. 75/2106 hafa það að markmiði að lækka húsnæðiskostnað efnaminni leigjenda með greiðslu húsnæðisbóta vegna leigu á íbúðarhúsnæði. Greiðslur húsnæðisbóta koma frá ríkinu. Sveitarfélögum er einnig skylt að veita sérstakan húsnæðisstuðning sbr. 45. gr. laga nr. 40/1991, um félagsþjónustu sveitarfélaga sbr.: „Sveitarfélög skulu veita sérstakan húsnæðisstuðning í samræmi við nánari reglur sem sveitarstjórn setur. … Ráðherra skal, að höfðu samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga, gefa út leiðbeinandi reglur til sveitarstjórna um framkvæmd stuðnings skv. 2. og 3. mgr. ásamt viðmiðunarfjárhæðum.“


Greiðslur húsnæðisbóta til leigjenda Félagsbústaða koma annars vegar frá Íbúðalánasjóði vegna almennra húsnæðisbóta og hinsvegar frá velferðarsviði Reykjavíkurborgar vegna sérstæks húsnæðisstuðnings.
Þar sem húsnæðisbætur eru tekjutengdar hafði nýleg leiðrétting sem snýr að útreikningi örorkubóta frá Tryggingarstofnun bein áhrif á þær. Húsnæðisbætur eru greiddar til leigjenda út um allt land.
Félagsbústaðir hafa upplýst leigjendur sína um áhrif leiðréttingarinnar á vefsvæði sínu.

Ný stjórn Félagsbústaða kjörin á aukaaðalfundi
rabakki
Írabakkinn fær andlitslyftingu
20221129_103046
Samkomulag um 12 íbúðir við Brekknaás
Háteigsvegur
Umfjöllun um Háteigsveg 59 í útvarpinu
Z90_6211
Öflug sjálfbærnistefna skilar grænum íbúðum
RGB_FF-2022-Ice-Red-Horz
Félagsbústaðir eru sjöunda árið í röð framúrskarandi fyrirtæki
Jorufell-1
Nýmálað og flott
Jafnvaegisvogin-ljosm-Silla-Pals-xxx-3
Félagsbústaðir hljóta Jafnvægisvogina 2022

Að hverju ertu að leita?