Chat with us, powered by LiveChat

Félagsbústaðir eru sjöunda árið í röð framúrskarandi fyrirtæki

News

Félagsbústaðir eru í þriðja efsta sæti meðal stærri fyrirtækja á landinu sem hljóta viðurkenningu Creditinfo sem „Framúrskarandi fyrirtæki 2022“. Þetta er sjöunda árið í röð sem félagið hlýtur viðurkenninguna.  Á vefsíðu Creditinfo segir að; „Framúrskarandi fyrirtæki eiga það sameiginlegt að vera stöðug fyrirtæki sem byggja rekstur sinn á sterkum stoðum og efla hag allra.“ Um 2% fyrirtækja í landinu fá að jafnaði þessa viðurkenningu. 

Til þess að fá viðurkenninguna framúrskarandi fyrirtæki þarf að uppfylla ýmis skilyrði. Nefna má að rekstrarhagnaður og ársniðurstaða þarf að vera jákvæður sl. 3 ár., eiginfjárhlutfall að lágmarki 20%  og eignir að minnsta kosti 100 milljónir síðustu 3 ár.

Á árinu 2021 sem tekið er mið af við matið námu tekjur Félagsbústaða ríflega fimm milljörðum króna, eiginfjárhlutfallið var rúmlega 53% og eignir félagsins rúmlega 126 milljörðum króna en það eru nánast eingöngu félagslegar leiguíbúðir í Reykjavík en þær eru nú liðlega 3000.

Alls voru 357 íbúðir endurnýjaðar og standsettar vegna leigjendaskipta á árinu 2021 og gerðir voru 472 leigusamningar við nýja leigjendur og leigjendur sem fluttust milli íbúða. Á árinu 2021 fjölgaði íbúðum í eigu Félagsbústaða um 117. Þar af voru fjögur ný 7 til 8 íbúða hús fyrir fatlað fólk. 

Við erum stolt af þessum árangri og horfum björtum augum til framtíðar, spennt að sinna okkar mikilvæga hópi viðskiptavina.

Capture Alfreð
Vantar þig sumarstarf?
Ný stjórn Félagsbústaða kjörin á aukaaðalfundi
rabakki
Írabakkinn fær andlitslyftingu
20221129_103046
Samkomulag um 12 íbúðir við Brekknaás
Háteigsvegur
Umfjöllun um Háteigsveg 59 í útvarpinu
Z90_6211
Öflug sjálfbærnistefna skilar grænum íbúðum
Jorufell-1
Nýmálað og flott
Jafnvaegisvogin-ljosm-Silla-Pals-xxx-3
Félagsbústaðir hljóta Jafnvægisvogina 2022

What are you looking for?