Borgarráð hefur samþykkt 5% hækkun á leiguverði Félagsbústaða og tekur hækkunin gildi 1. ágúst og er sú sama fyrir allar leigueiningar.
Á undanförnum misserum hafa orðið hækkanir á rekstarliðum Félagsbústaða eins fasteignagjöldum og vaxtakostnaði sem hafa haft neikvæð áhrif á rekstur félagsins. Því er þessi hækkun nauðsynleg til að rekstur Félagsbústaða verði áfram sjálfbær.
Samhliða hækkun húsaleigu hefur Reykjavíkurborg samþykkt breytingar á reglum um sérstakan húsnæðisstuðning frá 1. júlí. Það hefur í för með sér að fleiri leigjendur eiga rétt á sérstökum húsnæðisstuðningi og upphæð stuðnings hækkar hjá flestum leigjendum sem eiga rétt á sérstökum stuðningi.
Félagsbústaðir munu senda bréf til leigutaka í byrjun júlí með upplýsingum um breytingu leiguverðs.
Hægt er að skoða reglur Reykjavíkurborgar um sérstakan húsnæðisstuðning og finna tengil á reiknivél á heimasíðu Reykjavíkurborgar.