Félagsbústaðir hafa gefið út svonefnd félagsleg skuldabréf, þau fyrstu sinnar tegundar á Íslandi. Skuldabréfaflokkurinn, FB100366 SB, er verðtryggður til 47 ára og ber einfalda ábyrgð Reykjavíkurborgar. Alls voru 6.400 milljónir að nafnvirði seldar í lokuðu útboði á ávöxtunarkröfunni 1,90% og verður óskað eftir töku flokksins til viðskipta á Sustainable Bond markaði Nasdaq Iceland. Tilgangur útgáfunnar er meðal annars að fjármagna frekari fjárfestingar í leiguhúsnæði á vegum félagsins, en stefnt er að því að fjölga íbúðum Félagsbústaða um rúmlega 500 fram til ársins 2022.
Félagsleg skuldabréf (e. Social Bonds) eru skuldabréf sem gefin eru út til að fjármagna sérstök verkefni sem hafa jákvæð samfélagsleg áhrif. Einn helsti hvatinn að útgáfu slíkra skuldabréfa er vaxandi krafa fjárfesta um samfélagslega ábyrga fjárfestingakosti.
Félagsbústaðir settu sér fyrr á þessu ári félagslegan skuldabréfaramma um þessa útgáfu (e. Reykjavik Social Housing Social Bond Framework) sem fylgir alþjóðlegum viðmiðum um félagsleg skuldabréf (e. Social Bond Principles) gefnum út af ICMA, Alþjóðasamtökum aðila á verðbréfamarkaði. Ramminn hefur hlotið óháða vottun (e. second opinion) frá Sustainalytics sem er leiðandi aðili í slíkri vottunum á heimsvísu. Í vottuninni segir m.a. að rammi Félagsbústaða sé traustur, trúverðugur og áhrifamikill, og að hann samræmist öllum fjórum meginþáttum alþjóðalegra viðmiða um félagsleg skuldabréf.
Í samræmi við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna
Félagsbústaðir eru hlutafélag um eignarhald og rekstur félagslegs leiguhúsnæðis í eigu Reykjavíkurborgar. Félagið er stærsti eigandi félagslegs húsnæðis á landinu og um leið stærsta leigufélag landsins. Í lok árs 2018 áttu Félagsbústaðir 2654 íbúðir og hefur þeim fjölgað um 400 frá árinu 2014.
Aðgengi að tryggu leiguhúsnæði á viðráðanlegu verði telst til grundvallar mannréttinda og er lykilatriði þegar kemur að efnahagslegu heilbrigði samfélagsins. Í stöðuskýrslu um heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun, sem gefin var út hér á landi á síðasta ári, var aukið framboð á leiguhúsnæði á viðráðanlegu verði skilgreint sem eitt þeirra verkefna sem vinna þyrfti að á Íslandi. Slíkt húsnæði stuðlar að betri heilsu og efnahag ásamt auknum tækifærum einstaklinga til félagslegrar þátttöku. Félagslegar leiguíbúðir tryggja fólki með lágar tekjur öruggt húsnæði á viðráðanlegu verði sem kann að vera erfitt að finna á einkamarkaði.
Stefna Reykjavíkurborgar er að 5% alls húsnæðis í borginni séu félagslegar leiguíbúðir á hagstæðum kjörum. Reykvíkingar eru um 36% Íslendinga en þeir greiða að jafnaði hærra hlutfall af launum sínum til húsnæðis en aðrir landsmenn. Því er enn ríkari þörf fyrir félagslegt leiguhúsnæði á hagstæðum kjörum í Reykjavík.
Fossar markaðir höfðu umsjón með útgáfu félagslegu skuldabréfanna fyrir hönd Félagsbústaða. CIRCULAR Solutions veitti ráðgjöf við undirbúning og gerð rammans um félagsleg skuldabréf. Lagahvoll veitti félaginu lögfræðilega ráðgjöf.
Nánari upplýsingar:
Sigrún Árnadóttir
Framkvæmdastjóri Félagsbústaða
Sími: 520 1500
sigrun@felagsbustadir.is
Andri Guðmundsson
Framkvæmdastjóri fyrirtækjaráðgjafar
Fossar markaðir hf.
Sími: +46 72 567 6666
andri.gudmundsson@fossarmarkets.com