Chat with us, powered by LiveChat

FYRSTU FÉLAGSLEGU SKULDABRÉF FÉLAGSBÚSTAÐA SKRÁÐ Í KAUPHÖLL

Fréttir

Félagsbústaðir skráðu í dag fyrsta félagslega skuldabréfið á markað Nasdaq Iceland fyrir sjálfbær skuldabréf.  Skuldabréfið er um 6,4 milljarða að nafnvirði og er verðtryggt til 47 ára. Tilgangurinn með útgáfunni er að fjármagna byggingu á leiguíbúðum Félagsbústaða, en markmiðið er að fjölga íbúðum um 400 fram til ársins 2022. Félagslegu skuldabréf Félagsbústaða eru þau fjórðu sem skráð eru á markað Nasdaq Iceland fyrir sjálfbær skuldabréf. Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri og Sigrún Árnadóttir, framkvæmdastjóri Félagsbústaða hringdu inn fyrstu viðskipti með skuldabréfin.

Félagsbústaðir er hlutafélag í eigu Reykjavíkurborgar. Félagið á og rekur félagslegar íbúðir og hefur að markmiði að veita einstaklingum og fjölskyldum tryggan aðgang að leiguhúsnæði á viðráðanlegum kjörum. Undir lok ársins 2018 áttu Félagsbústaðir 2654 íbúðir. Félagsbústaðir hafa sett sér félagslegan skuldabréfaramma um útgáfuna (e. Reykjavik Social Housing Social Bond Framework) sem fylgir alþjóðlegum viðmiðum um félagsleg skuldabréf gefnum út af ICMA, Alþjóðasamtökum aðila á verðbréfamarkaði. Ramminn hefur hlotið óháða vottun frá Sustainalytics sem er leiðandi aðili í slíkri vottunum á heimsvísu. Í vottuninni segir m.a. að rammi Félagsbústaða sé traustur, trúverðugur og áhrifamikill, og að hann samræmist öllum fjórum meginþáttum alþjóðalegra viðmiða um félagsleg skuldabréf.

„Við erum mjög ánægð og stolt yfir því að vera fyrst til að skrá félagsleg skuldabréf á markað Nasdaq Iceland fyrir sjálfbær skuldabréf,” sagði Sigrún Árnadóttir, framkvæmdastjóri Félagsbústaða. „Við erum einnig þakklát fyrir góð viðbrögð frá fjárfestum sem benda til mikils stuðnings við samfélagsleg verkefni okkar. Okkar verkefni og markmið er að veita öruggt leiguhúsnæði á viðráðanlegum kjörum. Skuldabréfaútgáfan mun gera okkur kleift að fjölga íbúðum á næstu misserum.“

Fossar markaðir höfðu umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna. Circular Solutions veitti ráðgjöf við gerð skuldabréfarammans um félagsleg skuldabréf.

Um skuldabréfaramma Félagsbústaða

Félagsbústaðir hafa sett sér félagslegan skuldabréfaramma um útgáfuna (e. Reykjavik Social Housing Social Bond Framework) sem fylgir alþjóðlegum viðmiðum um félagsleg skuldabréf gefnum út af ICMA, Alþjóðasamtökum aðila á verðbréfamarkaði. Ramminn hefur hlotið óháða vottun frá Sustainalytics sem er leiðandi aðili í slíkri vottunum á heimsvísu. Í vottuninni segir m.a. að rammi Félagsbústaða sé traustur, trúverðugur og áhrifamikill, og að hann samræmist öllum fjórum meginþáttum alþjóðalegra viðmiða um félagsleg skuldabréf.

Ný stjórn Félagsbústaða kjörin á aukaaðalfundi
rabakki
Írabakkinn fær andlitslyftingu
20221129_103046
Samkomulag um 12 íbúðir við Brekknaás
Háteigsvegur
Umfjöllun um Háteigsveg 59 í útvarpinu
Z90_6211
Öflug sjálfbærnistefna skilar grænum íbúðum
RGB_FF-2022-Ice-Red-Horz
Félagsbústaðir eru sjöunda árið í röð framúrskarandi fyrirtæki
Jorufell-1
Nýmálað og flott
Jafnvaegisvogin-ljosm-Silla-Pals-xxx-3
Félagsbústaðir hljóta Jafnvægisvogina 2022

Að hverju ertu að leita?