Chat with us, powered by LiveChat

ÚTBOÐ Á SKULDABRÉFUM 6. SEPTEMBER

Fréttir

Félagsbústaðir hf. efna til útboðs á skuldabréfum fimmtudaginn 6. september næstkomandi. Boðin verða til sölu ný skuldabréf í flokkunum, FB100366 og FB100366u.

Báðir flokkar eru til 48 ára, verðtryggðir með jöfnum greiðslum og veðtryggðir með tryggingafyrirkomulagi félagsins með að hámarki 75% veðsetningu miðað við uppreiknað fasteignamat. Munur á flokkunum felst í uppgreiðsluheimild FB100366u eftir 20 og 30 ár, en FB100366 er óuppgreiðanlegur. Áður hafa verið gefin út bréf í FB100366 að nafnverði 1.900.000.000 kr. og FB100366u að nafnverði 250.000.000 kr. og hafa þau verið tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland.

Fjárfestingabankasvið Arion banka hf. hefur umsjón með útboðinu. Heildarstærð útboðsins getur verið allt að 5,35 milljarðar króna, sem nemur eftirstöðvum útgáfuáætlunar félagsins til ársloka 2018. Útboðið verður með hollenskri aðferð, þ.e. öll samþykkt tilboð bjóðast fjárfestum á hæstu ávöxtunarkröfu sem tekið er. Félagið áskilur sér rétt til þess að taka hvaða tilboði sem er að hluta eða í heild eða hafna þeim öllum. Óskað verður eftir að ný bréf í báðum flokkum, sem seld verða í útboðinu, verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland.

Útboðið er lokað og undanþegið gerð lýsingar, sbr. 1. mgr., 1. tl. a og b 50. greinar laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti, en grunnlýsing vegna útgáfuramma félagsins er birt ásamt endanlegum skilmálum þeirra skuldabréfa sem gefin verða út og óskað eftir að tekin verði til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland.

Nánari upplýsingar veita:

Auðun Freyr Ingvarsson, á netfanginu audun@felagsbustadir.is eða í síma 520 1500

Birgir Guðfinnsson, markaðsviðskiptum fjárfestingarbankasviðs Arion banka hf., á netfanginu verdbrefamidlun@arionbanki.is eða í síma 444 7337

Capture Alfreð
Vantar þig sumarstarf?
Ný stjórn Félagsbústaða kjörin á aukaaðalfundi
rabakki
Írabakkinn fær andlitslyftingu
20221129_103046
Samkomulag um 12 íbúðir við Brekknaás
Háteigsvegur
Umfjöllun um Háteigsveg 59 í útvarpinu
Z90_6211
Öflug sjálfbærnistefna skilar grænum íbúðum
RGB_FF-2022-Ice-Red-Horz
Félagsbústaðir eru sjöunda árið í röð framúrskarandi fyrirtæki
Jorufell-1
Nýmálað og flott

Að hverju ertu að leita?